Viðhaldsendurhæfing / Dagþjónusta
Viðhaldsendurhæfing í dagþjónustu
Markhópur
Einstaklingar með skaða á miðtaugakerfi sem búa í sjálfstæðri búsetu og hafa lokið virkri endurhæfingu en þurfa sérhæfða nálgun og viðhaldsþjálfun tengt hreyfifærni, tjáningu, samskiptum og/eða vitrænum þáttum s.s. athygli, minni og stýrifærni.
Tilvísunaraðilar
Endurhæfingateymi Kjarks endurhæfingar, Landspítali Grensásdeild, Reykjalundur og heimilislæknar, velferðarsvið sveitarfélaga.
Markmið
Að viðhalda færni og sjálfstæði einstaklingsins, ásamt því að styðja hann til aukinnar þátttöku í samfélaginu.
Tímalengd
Þjónustuþörf endurskoðuð á 6 mánaða fresti
Fagaðilar sem starfa í teymi
Iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari, talmeinafræðingur.
Innihald
Þjálfun í hópum undir leiðsögn fagaðila með þekkingu á skaða í miðtaugakerfi og áhrif hans á færni og lífsgæði. Þjálfunarhópar valdir í samvinnu við einstaklinginn og þarfir hans. Þjálfunaráætlun er endurskoðuð reglulega í einstaklingsviðtölum (ekki sjaldnar en á 6 mánaða fresti).
Umsóknarferli
Einstaklingur fyllir út umsókn og sendir inn ásamt læknabréfi og nánari upplýsingum frá fagaðilum. Umsókn er tekin fyrir af inntökuteymi skv. vinnureglum. Mælt er með því að kynna sér starfsemina áður en sótt er um og koma í heimsókn til að vera viss um að þetta úrræði henti.
Eftir að umsókn hefur verið útfyllt þarf að senda hana til inntökuteymis. Hægt er að senda umsókn og fylgigögn rafrænt í gegnum Sögu-sjúkraskrá eða með Signet transfer. Að öðrum kosti má senda hana með bréfpósti til Kjarks endurhæfingar, Hátúni 12, 105 Reykjavík.
Tengill á umsókn er hér fyrir neðan.
Sækja umsókn